Ađalvalmynd

Prófíll

Auglýsing

Bloggers...

Links..

afmćliđ, sumariđ, vinnan og skólinnKópur Guđjónsson

Jæja, þá fer sumarinu að ljúka og skólinn að taka við í eina önn í viðbót.. þá fer maður bara aftur í það að vinna hálfann daginn í senn en það er bara fram í desember... þangað til skólinn er búinn (fyrir fullt og allt vonandi)

Nú er hokkíið líka byrjað og það byrjar af fullum krafti, hraðmót núna í september og allt að gerast... bara vonandi að við fáum fleirri varnarmenn í liðið =/

Svo er það afmælið... já átti afmæli fyrir 10 dögum, 10 ágúst... og héllt smá öldrykkju fyrir vini mína á sólon.. djöfull var það gaman... þ.a.s. til tólf en þá fór fólk sem ég þekki ekki rassgat að tínast inn á efrihæðina.. svo endaði það bara heima kl 3... dauður =P

En í augnablikinu liggur maður bara veikur heima með eimhverja helvítis flensu, beinverki, einhvern vírus sem lætur hálsinn á mér vera fucked up, kvef og fleirra... bara eins og flensan er í dag...

Nenni ekki að skrifa meira núna... þetta er fínt svona á 3-4 vikna fresti =P

Adios...

P.S. Pétur, ég týndi myndinni af jeppanum á stóru dekkjunum =/ kemur seinna...

KG

Project Wrangler Update!Kópur Guđjónsson

Jæja, smá update á þetta blessaða blogg...

Keypti svona dekk undir svarta fákinn, Toyo Open Contry 33x13.50R15
Toyo Open contry

og þau fara á svona felgur, sem ég er reyndar löngu búinn að keupa....

Ion alloy Felga

smá specs um dekkin...

 

- Agressive, attack tread
   design with hook-shaped blocks
- Scalloped shoulder blocks
- Tread block stabilizer
- Deep siping in the tread blocks
- Open shoulder design

 

- Aggressive, attack tread design
- Over-the-shoulder tread
- Open shoulder design
- Black outline serrated lettering
- Rim protector in lower sidewall

 

- DSOC II™ Technology
- High turn-up, 3-ply casing
- Two wide steel belts
- Two spiral wound nylon cap plies
- High bead filler

 

- Aggressive, attack tread design
- Over-the-shoulder tread
- Cap/base construction
- Tread block stabilizers
- Open, scalloped shoulder blocks
- Deep siping in the tread blocks

 

- DSOC II™ Technology
- Computer-optimized tread design
- Advanced production technology
 for unheard of levels of uniformity
- Tread elements shaped and
staggered for reduced noise
- 3-ply polyester casing
- Single strand, jointless bead
wire construction

 

- High turn-up, 3-ply polyester casing
- Two spiral wound nylon cap plies
- Two wide steel belts
- Cap/base construction
- Bruise and abraision resistant
sidewall compound

Project WranglerKópur Guđjónsson

Jæja, nú er loksins eitthvað að ské í þessum jeppa málum mínum Hlæjandi  ég er búinn að hækka hann upp að framan og þá er bara eftir að aftan....

Project Wrangler

Smá breyting að framan....

Project Wrangler

Hvað finnst ykkur um þetta ? endilega tjáið ykkur....

Núna er Ræsir HF flutt uppá Krókháls 11 og allann þennan mánuð er maður búinn að vera að vinna eins og brjálæðingur, alla virka daga frá 8 um morguninn til 9, 10, 11 og 12 á kvöldin og svo alla laugardaga og marga sunnudaga....

Svo þarf maður eitthvað að fara að hreyfa sig og undirbúa sig fyrir næsta hokkí-tímabil, svo maður geti nú eitthvað Ullandi

Svo styttist nú í 20 ára afmæli hjá manni, 1 mánuður og 15 dagar, þá verður sko partý Svalur

en jæja kveð að sinni....

KG

Páskar...Kópur Guđjónsson

Jæja, frekar dálítið mjög langt síðan ég bloggaði seinast, bloggið hefur einhvernveginn bara farið framhjá mér síðustu 2 mánuði, hef lítið sem ekkert skrifað á mitt blogg og það sama með að lesa annarra manna blogg. 

Tja, síðustu 2 mánuðir hafa verið bara fínir, smá djamm inn á milli og svo æfingar og hokkíleikir í runum... unnum einhverja leiki í MFL og töpuðum svo allavega 2 síðustu leikjunum sem að við hefðum allveg getað unnið, búinn að skora 3-4 mörk á þessu seasoni og eiga svona 7-10 stoðsendingar, ég tel það bara vera nokkuð góðann árangur (meðavið mig =), núna erum við að setja saman hjól fyrir Húsasmiðjuna, fáum fullt af money fyrir, eitthvað fer sennilega í klefann okkar, einhverjir voru að tala um að fá heitann pott uppí klefa og svona, það væri svo sem allveg nice en mig dauðlangar ekkert í svona pott...

Núna er páskafrí í skólanum = vinna vinna vinna, sem er svo sem fínt, meiri vinna meira money (staðreynd), skólinn er búinn að ganga nokkuð vel, búinn að vera að fá fínar einkanir í lotunum.... svo erum við að hamast við að setja þetta blessaða 
Metan (www.metan.is) kerfi í Ford Focus niðrí skóla, það gengur ekkert alltof hratt en það gengur...

My Wrangler

Ætla að taka jeppann minn inn um páskana og hreinsa botninn í honum, trebba og mála og setja svo kannski teppið í hann, tek kannski bara líka ryðhrúguna af sætunum og mála, sé til hvað ég nenni að vera duglegur... en það fer senn að líða að ég panti þetta blessaða hækkunarkitt undir Wranglerinn, er ennþá að pæla í hvort ég ætla að taka fjaðrir eða gorma, tja, fjaðrirnar eru ódýrari en með gormunum fæ ég mun betri fjöðrun og aksturseiginleika... sé til hversu mikið maður tímir að eyða í þetta...

Upphækkunarsett
Pro-Comp-5"-gorma-upphækkunarsett.

Over & Out
K.G.

....Kópur Guđjónsson

Þetta er eiginlega ekki búin að vera viðburðarík vika... bara búinn að vera að taka upp einhverja sjálfskiptingu í skólanum og svo bara gera hitt og þetta í vinnunni... var að koma af æfingu og getiði hvað, fékk pökkinn í kjálkann, aftast á kjálkann vinstra megin... var frekar vont fyrst en svo lagaðist það og varð svo vont aftur Óákveðinn 

En já, það er hokkíleikur á laugardaginn... í Egilshöll, veit ekki nákvæmlega hvenær hann byrjar en ég commenta bara þegar ég veit það... vonandi að þið sjáið ykkur fært að mæta (þ.a.s. þeir sem vilja mæta)

Allavega, úborgunardagur á morgun og svona, voða gaman... heyrumst...

KG.

Ferđin Norđur..Kópur Guđjónsson

Fór Norður til Akureyrar í gær að spila við SA menn... þegar 20 mínútur voru í leikinn vorum við rétt svo að renna inn í Akueyri, enginn neitt stressaður og svona..  Brosandi  leikurinn byrjaði vel og við áttu fyrsta markið þar, Sergei skoraði eftir að Biggi Burehh sendi á mig og ég á Sergei (ég semsagt með stoðsendingu)  og svo skoruðum við næsta mark, komumst í 2-0, svo skoruðum við aftur, minnir að Daði hafi skorað það mark og ég var líka með stoðsendingu þar (2 stig í þessum leik), staðan 3-0 og aftur skoruðum við þangað til staðan var orðin 6-0 fyrir okkur... svo byrjuðu sumir leikmennirnir að rífa kjaft og eitthvað svona kjaftæði, við nánast með unnin leik og þá dettum sumum að fara að fá leikbann og eitthvað í næsta leik og þá byrjuðu SA menn að skora og skoruðu ein 4 mörk þannig að leikurinn í gær endaði 6-4 fyrir okkur.... Ég bjóst svo sem ekki við þessu markahlutfalli, að við skyldum komast í 6-0....

KG. Hlæjandi

Allt í OrdenKópur Guđjónsson

Nú er loksins komin smá regla á lífið hjá manni aftur, skólinn byrjaður, semsagt skóli á morgnanna frá 8:10 til 12:00 svo er vinna þar á eftir og svo annaðhvort ekkert eða hokíæfing.. mjög þægilegt.. Brosandi

Leikurinn í gær, Björninn - SR í U20, endaði 5-5, þetta var góður leikur, mikið um mörg en frekar lítið um tjékk hjá mönnum... þoli það ekki, þegar menn í liðinu mínu tjékka ekki og nenna ekki að skauta á eftir helvítis pekkinum... svona leti, tilhvers eru þá menn að æfa yfir höfuð ? vilja þeir ekki vinna leiki ? eru þeir kannski bara að æfa til að gera eitthvað ?

Anyway, fékk Lifandi Vísindi áðan og það fylgdi skrýtið dagatal með, dagatal með myndum af "Undursamlegum mökunarleikjum dýranna" Ullandi akkúrat dagatalið sem manni langaði í =)

KG.

Nú fór ţađ illa..Kópur Guđjónsson

Jæja, töpuðum leiknum í gær, 4-0 en staðan var 1-0 þangað til 5 mínútur voru eftir, þá komust SA menn í 2-0 og svo skoruðu þeir í autt markið, 3-0, svo var síðasta markið einhver vitleysa... þannig að fyrir mér fór þessi leikur 2-0...
En við töpuðum ekki bara þessum leik, heldur fór hægri löppin á mér í rúst, var hnjáaður í lærið, fékk slappskot í öklann og svo var ég tjékkaður og snéri einhvernveginn upp á hnéð á mér, þannig að öklinn, lærið og hnéð á mér eru í rústi... Fýldur en mér fannst ég vera sá eini sem var að fórna sér eitthvað fyrir liðið og tjékka hina leikmennina eitthvað af viti, kannski voru fleirri að því, veit ekki...
Svo er leikur á þriðjudaginn í 2fl, uppí Egilshöll á móti SR, ég verð sennilega ekki með ef að löppin á mér verður svona á morgun líka Fýldur

KG.

Vagg og VeltaKópur Guđjónsson

Já, nú er jóla- og áramótafríið búið og maður er allveg að springa (eins og margir aðrir) útaf því að maður borðaði svo mikið um jólin... en svona er þetta..

Fór á fyrstu æfinguna í gær síða 17 desember og hún var fokk erfið, allir að kúka á sig á æfingunni og svona, fyrsti leikur á Laugardaginn á móti SA, í Egilshöll kl: 20:45 (eða strax á eftir kvennaleiknum), ekki láta ykkur vanta þar, svo er annar leikur á þriðjudaginn á móti SR, líka í Egilshöllinni og sennilega klukkan 20:00 (læt ykkur vita ef tímasetningin breytist), þetta eru 2 fl. leikir (þeir eru langskemmtilegastir)....

já 1 í viðbót Gleðilegt ár og takk fyrir árið í fyrra =) það var mjög skemmtilegt, kynntist fullt af skemmtilegu fólki og eitthvað af leiðinlegu (en förum ekkert meira út í það fólk) Brosandi

KG.

JólKópur Guđjónsson


Gleðileg Jól

og farsælt komandi nýtt ár og takk fyrir það liðna á þessu skemmtilega ári.

KG.
Síđa 1 af 5

Teljari

Könnun

Skóli/vinna í vetur

Gagnasafn